Bookmark and Share

Bílaklúbbur Akureyrar

Bílaklúbbur Akureyrar

Velkomin á heimasíðu Bílaklúbbs Akureyrar

Nýjustu fréttir

Éljagangur 2012



Sleðaspyrna KKA - breytt staðsetning


Vegna snjóleysis í byggð hefur sú ákvörðun verið tekin að færa Sleðaspyrnuna og snjóbrettakeppni+sýninguna frá Toyotatúninu upp í Hlíðarfjall. Útbúin verður flott aðstaða í Hólabrautinni, sem liggur meðfram veginum að skíðahótelinu, nægur snjór er í fjallinu og kjöraðstæður til að horfa á flotta sýningu.

Lesa meira

Fyrsta námskeiðið í nýja ökugerðinu

Fyrstu nemar ökugerðisins hér á ferð á nýju kennslubifreiðum svæðisins
Fyrsta námskeiðið í nýja ökugerðinu okkar var haldið nú á miðvikudaginn. Þá mættu til okkar þrír ungir ökumenn, sem reyndar allir eru komnir með bílpróf, og reyndu sig í ökugerðinu. Kristinn Örn Jónsson ökukennari og forsvarsmaður ökugerðisins, segir að ökumennirnir hafi verið ánægðir með þær aðstæður sem í boði eru. Ökugerðið á Akureyri er hið eina sinnar tegundar hér á landi.

Lesa meira

Þorrablót Tíunnar


Hið árlega þorrablót Tíunnar fer fram laugardaginn 4. febrúar næstkomandi í Hafnarvitanum á Akureyri (húsið á planinu hjá Eimskip). Skráining er opin fram á hádegi á föstudag og hægt er að skrá sig með tölvupósti tian@tian.is eða í síma 869-3332.


Lesa meira

Vinnukvöld - Fornbílakvöld


Í kvöld dreifum við starfsseminni aðeins en fornbíladeildin ætlar að hittast í skúrnum hjá Björgvini kl. 20:30.- þar sem áfram verður starfað í Ford AA bifreiðinni okkar ásamt því að við tökum til í öðrum eignum félagsins sem þar hafa verið í geymslu og ferjum þær uppí félagsheimilið okkar. Í félagsheimilinu verður einnig opið hús þar sem Rallykrossdeildin ætlar að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið á laugardag við tengingar á ljósum á göngum og koma upp loftklæðningu þar.


Lesa meira

Sno Cross Country


Þá er komið að því, skráning er hafin í 1. umferðina í Sno Cross Country 2012 sem mun fara fram þann 4. febrúar á akstursíþróttasvæði VÍK í Bolaöldu. Fyrir þá sem ekki vita eru þetta einskonar endurokeppnir fyrir snjósleða og er þetta tilraun snjósleðanefndar MSÍ til að sprauta lífi í keppnishald í sleðasportinu hér heima.

Lesa meira

Ferð á Súlumýrar

Jeppadeildin tók smá könnunarleiðangur á Súlumýrar um helgina til þess að kanna færi og snjóalög. Hér má sjá smá myndband úr þessum túr, en sem fyrr þá heldur deildin titlinum "sjáum heim" í þessum ferðum þar sem við búum það vel að geta nálgast toppaðstæður fyrir svona æfingar og alltaf séð heim!



Jeppadeildin

Rallykrossdeild með vinnudag

Rallykrossdeildin verður með vinnudag morgundagsins og mun mæta í félagsheimilið okkar kl. 13:00.- Það á að leggja nokkra kapla, kíkja á milliloftið og taka almenna tiltekt á staðnum. Hvetjum félagsmenn til þess að fjölmenna til okkar svo við getum öll hjálpast að við að græja húsið fyrir sumarið.

Rallykrossdeildin


Skráning hafin í fyrstu rallykrosskeppni ársins


Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar er nú fyrst okkar samstarfsfélaga að halda keppni á þessu ári en vetrarbikarmót þeirra í rallykrossi hefst sunnudaginn 5. febrúar n.k. Skráning í mótið er hafin og má nálgast allar upplýsingar um skráningu sem og keppnina í heild í meðfylgjandi tilkynningu frá AÍH:

Lesa meira

Bíló í kvöld


Fornbíladeildin heldur áfram að huga að Fordinum í kvöld en við ætlum að hittast hjá Björgvini og klára að máta hann hann saman fyrir sprautun. Húsið opnar kl. 20:30.- og það eru allir velkomnir hvort sem er í spjall og kaffi eða til þess að fá að skrúfa í vörubílnum.

Fornbíladeildin


Skráning á Þorrablótið

Nú eru einungis örfáir miðar eftir á Þorrablót FBÍ svo við hvetjum þá sem vilja fara með okkur í þessa ferð að skrá sig sem allra fyrst. Skráning fer fram á ba@ba.is

Fornbíladeildin


Bíladagar 2011

Flott myndband frá Magnúsi B. Guðmundssyni - þökkum honum kærlega fyrir þessa frábæru klippu!!


Stefán Bjarnhéðinsson heiðraður hjá ÍBA

Stefán Bjarnhéðinsson með viðurkenningu sína frá ÍBA
Stefán Bjarnhéðinsson tók á móti viðurkenningu frá Íþróttabandalagi Akureyrar á hófi bandalagsins síðastliðinn miðvikudag. Stefán var tilnefndur til titilsins Íþróttamaður Akureyrar fyrir framúrskarandi árangur sinn í sportinu á liðnu ári. Alls voru 15 tilnefningar til þessa titils en eins og áður hefur komið fram var það hún Bryndís Rún Hansen, sundkona í Óðni, sem hampaði titilinum að þessu sinni - rétt eins og síðustu tvö ár.

Lesa meira

Vinnudagur á laugardag

Við tökum næstu rispu í félagsheimilinu okkar á laugardaginn og verðum með húsið opið frá kl. 13:00.- og eitthvað frameftir degi. Farið verður betur yfir rafmagn í austurhlutanum á húsinu ásamt því að klæðning verður fest upp í ganginum þar. Hvetjum sem flesta til þess að kíkja við og hjálpa til!

Stjórnin


Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 73
Samtals: 225353

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hvernig fannst þér árið 2011

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn