Bookmark and Share

Bílaklúbbur Akureyrar

Bílaklúbbur Akureyrar

Velkomin á heimasíðu Bílaklúbbs Akureyrar

 

Nýjustu fréttir

Úrslit í Afmælisspyrnu

Áttum finan dag á brautinni og eru úrslit dagsins komin hér http://spjall.ba.is/index.php?topic=6314.0

Verðlaunaafhending fer fram í kvöld í Félagsheimilinu kl 21.00

Ath, veitingar eru ekki seldar á staðum.

Kv
B.A

Götuspyrna 20. ára Afmælismót

N.k Laugardag 25.05. Kl 14.00 fer fram Götuspyrna á Akstursíþóttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg.
Keppni hefst kl 14.00 og keppt verður í öllum flokkum Bíla og Mótorhjóla.

Skráning keppnistækja fer fram á emaili kristjan@ba.is og lýkur skráningu kl 23.59 Miðvikudaginn
22.05.2013.

Verið velkominn á Spyrnuveislu B.A


Ystafell Miðvikudagskvöld

Miðvikudagskvöldið 22.05  ætlum við í Fornbíladeild að fara til Sverris í Ystafelli og hjálpa honum að þrífa bílana á safninu og stilla þeim upp.
Mæting við Leirunesti kl 19.15 lagt af stað kl 19.30.
Það væri gott ef menn hefðu með sér vaskaskinn og bónklúta.
KV
Jón Rúnar
Fornbíladeild B.A

Skráning í Afmælisspyrnu 25. maí hafin!

Skráning er hafin í afmælisspyrnu BA sem er haldin þann 25.maí 2013 á akstursíþróttasvæði BA


Skráningu lýkur miðvikudagskvöldið 22.maí kl 23:59

Lesa meira

Fornbíla rúntur í kvöld

Í kvöld kl 20.30 verður tekinn rúntur um Bæjinn okkar og hittumst við framan við Kaffi Amour kl 20.30

Sjáumst heitir

Fornbíladeildin
Jón Rúnar


Vinnudagur í Félagsheimilinu

Næstkomandi Laugardag 18.05 er skipulagður vinnudagur við félagsheimilið okkar og tekið til við að fegra og snyrta fyrir komandi keppnistímabil, áætlað er að klæða neðst á norðurhlið félagheimilissins og mála norðurhliðina, laga pallinn og margt annað smálegt.
Lofum því að hafa næg verkefni fyrir alla sem sjá sér fært að mæta og hvetum félagsmenn að fjölmenna.

Mætum Kl 10.00 og eitthvað verður unnið frammá daginn.

Kaffi í boði og jafnvel með því.
Kv
B.A


Námskeið í Keppnishaldi

Mánudagskvöldið 13.05 veður haldið Námskeið í keppnishaldi í Félagsheimili B.A, farið verður yfir öryggisþætti reglur og framkvæmd keppna.
Allir sem vilja eru kvattir til að mæta og öðlast réttindi til að vera keppnisstjórar, skoðunarmenn og öryggisfulltrúar.
Námskeiðið er á vegum AKÍS og leiðbeinandi er Ólafur Guðmundsson.
Tímasettnig verður sett hér inn síðar en áætlað er að þetta verði kl 20.00

kv
B.A


Fundur í Fornbíladeild B.A

Almennur fundur verður í félagsheimilinu Miðvikudaginn 08.04 kl 20.30
Farið verður yfir sumardagskrá deildarinnar og skipulagður skoðunardagur Fornbíla á Laugardaginn hjá Frumherja.
J.R
Fornbíladeild


Fornbílaskoðun 11. Mai

Fornbílaskoðun verður hjá Frumherja 11. maí frá klukkan 10-14
Skoðunargjald fyrir félagsmenn er 2100 krónur, grill 1000 krónur.
Skráning í skoðunina er á jr@ba.is  eða í síma 8616929
Kveðja
Jón Rúnar

Jeppadeildin fer í Skúra

Mánudaginn 6 Mai verður torfæruhittingur kl 20:30  í Silfurtanga (gamla Strýtuhúsinu) beint á móti Súluhúsinu, neðst í portinu.
Hetjur Hafsins þeir Elmo, þór þormar á Heimasætunni og Gestur á Draumum munu bjóða uppá endalaus loforð um árangur á

 

Lesa meira

Keppnisskírteini 2013

Viljum við benda keppendum á að kaupa Keppnisskírteini tímanlega fyrir komandi keppnir hér á http://www.asisport.is/umsoknir/keppnisskirteini/ ekki verður hægt að kaupa á staðnum í sumar svo viljum við minna menn og konur á að vera með þetta á hreinu svo ekki komi til þess að vísa þurfi mönnum frá vegna þessa. Einnig bendum 
Lesa meira

Skúraheimsókn Fornbíladeildar

Nú förum við í heimsókn að Óseyri til AMC feðganna Jóa Björgvins og Leonards og skoðum allt AMC safnið á Miðvikudaginn 24.04.13. kl 21.30.
Saga AMC verður rakinn aftur um aldir og margar skemmtilegar sögur munu falla.
Þeir feðgar voru að eignast einn öflugasti AMC landsins sem verður til sýnis og kynntur ásamt öðrum fræknum fákum í eigu þeirra feðga.

Fornbíladeildin
J.R

Fornbíladeild kvikmyndakvöld

Miðvikudaginn 17.04 verður sýnd mynd um Muscle Cars úr Automaniac  þáttaröðinni frá History Channel.
Félagar í FBÍ eru auðvitað velkomnir eins og alltaf, kvöldið er haldið í húsnæði B.A og opnar þar kl. 20.30. Sýningin hefst kl. 21.00 og boðið verður upp á kaffi og passlega sannar frægðarsögur í kjölfar sýningarinnar.

Fornbíladeildin.
J.R

Fréttir frá Svíþjóð

Við vorum að fá póst frá torfærufrændum okkur í Svíþjóð þar sem þeir hafa tekið viðtöl við ökumenn í NEZ torfærunni.  Góð upphitun fyrir komandi vertíð.  Smellið á linkinn: www.formulaoffroad.se/play

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 197
Samtals: 343898

Dagatal

« Maí 2013 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Könnun

Á að mæta á Shell Bíladaga

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn