Bookmark and Share

Bílaklúbbur Akureyrar

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Frambjóðendur á fornbílakvöldi

Í kvöld munu þeir félagar Logi Már Einarsson arkítekt og Ragnar Sverrisson stórkaupmaður heimsækja okkur - en þeir eru eins og gefur að skilja mættir til þess að reyna smala sér atkvæðum fyrir prófkjör Samfylkingarinnar sem fram fer um næstu helgi. Við bjóðum þá að sjálfsögðu hjartanlega velkomna til okkar enda annálaðir öðlingar báðir tveir.

Þarna gefst líka bílaáhugamönnum kjörið tækifæri til þess að spyrja frambjóðendur um stefnu og markmið þeirra er snúa að okkar áhugamáli, eins og til dæmis:

Hvaða endi hafi tekið upp á því að láta salta götur bæjarans og hvort ekki megi lofa okkur að því verði hætt tafarlaust?

Hvort Akureyrarbær ætli sér ekki að nýta mögulegt tækifæri sem nú býðst til þess að taka stórkostlegt gæfuspor varðandi umferðisöryggis mál og verða þar með fyrsta íslenska sveitarfélagið sem hysjar upp um sig buxurnar og gerir eitthvað í þeim málum - frekar en að benda endalaust á ríkið og bora bara í nefið?

Hvort ekki sé kominn tími á uppbyggingu á samgönguminjasafni á Akureyri, einum þekktasta bílabæ landsins?

Hvort bærinn ætli áfram að reka eineltisstefnu í samstarfi við Heilbrigiðseftirlitið gagnvart bíleigendum?

Hvert sé þeirra álit gagnvart fornbílastarfssemi félagsins og hvort ekki megi búast við sambærilegum fjárhagslegum stuðningi frá þeim og vegna annars menningarstarfs í bænum?

Hvenær standi til að stíga skrefið til fulls og gera uppbyggingarsamning við Bílaklúbbinn vegna framkvæmda okkar, sbr. samning ÍBA og Akureyrabæjar þar um?

Hvort ákvörðunarfælnin sem virðist loða leiðinlega við Samfylkinguna sé bara hjá núverandi forystusauðum - eða hvort þetta sé heilt yfir?

Hvetjum sem flesta til þess að mæta með okkur í kvöld og hafa gaman af, við opnum að venju kl. 20:30.- og verðum með heitt á könnunni og nýbakaðar smákökur!!






Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 16
Samtals: 63988

Dagatal

« Mars 2010 »
SMÞMFFL
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031 

Könnun

Á Bílaklúbbur Akureyrar að opna opið - gjaldfrítt spjallsvæði?

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn