Nýtt ökugerði
fimmtudagur 04.febrúar 2010 - Lestrar 58

Til stendur að byggja ökugerði samkvæmt reglugerð Umferðarstofu þar um með hálkubrautum og öllu tilheyrandi en jafnframt á að setja upp á staðnum um 900 metra langa Go-Kart braut. Framtíðar áform eru svo um brautir fyrir supermoto, rallykross og aðstöðu fyrir torfærukeppnir.
Við óskum áhugamönnum, rekstaraðilum og landsmönnum öllum innilega til hamingju með þennan frábæra áfanga og vonum að uppbygging rísi hratt og vel!


























