Prófanir hefjast í dag
mánudagur 01.febrúar 2010 - Lestrar 31

Hér mjá sjá Schumacher ásamt hinum glænýja Mercedes MGP W01 í Valencia í morgun
Það fylgir fyrstu prufunum ávallt mikil spenna þar sem liðin hafa nú öll í skjóli vetrar reynt að galdra fram sem öflugastan bíl fyrir tímabilið ásamt því að nýjir ökumenn fá að keyra í nýjum heimkynnum eða með nýjum liðum. Þrátt fyrir flutning Fernando Alonso til Ferrari og Jenson Button til McLaren er óhætt að segja að flestir bíði spenntir eftir frumakstri Michael Schumacher á Mercedes-Benz.
Schumacher mun keyra á Valencia brautinni í dag ásamt liðsfélaga sínum og samlanda, Nico Roseberg. Aðeins einn keppnisbíll er tilbúinn hjá Benz og munu þeir því skiptast á að keyra bílinn í dag, Roseberg fyrir hádegi og Schumacher seinnipartinn.
Fréttir af reynsluakstri og frumsýningum formúluliðanna má fá á heimasíðunni Kappakstur.is

























