Torfærusýning - Gísli G. Jónsson
þriðjudagur 09.febrúar 2010 - Lestrar 57
Bæjarbókasafnið í Þorlákshöfn hefur nú opnað nýja og ansi áhugaverða sýningu í Galleríinu Undir Stiganum.
Að þessu sinni verður reynt að varpa ljósi á feril torfærukappans Gísla Gunnars Jónssonar sem hefur hampað mörgum
titlum og bikurum í gegnum tíðina. Sýndir verða bikarar Gísla, myndir frá keppnum, bílamódel og greint frá ferli hans í
torfæruakstri. Gísli hefur keppt í fjölmörgum keppnum síðan 1991 og er margfaldur Íslandsmeistari og fyrrverandi heimsmeistari. Sýningin stendur
yfir allan febrúarmánuð.