Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri
laugardagur 06.febrúar 2010 - Lestrar 61

Vetraríþróttahátíð ÍSÍ stendur nú yfir frá 6. febrúar til 21. mars auk þess sem Andrésar Andar leikarnir sem fram fara í lok apríl eru undir hatti Vetraríþróttahátíðarinnar. Á dagskrá Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ er að finna viðburði sem ná yfir sem flestar íþróttagreinar þar sem snjór og útivist eru í aðalhlutverki.
Hlíðarfjall skipar stóran sess í hátíðinni þar sem hefðbundin skíði, gönguskíði, telemarkskíði og snjóbretti verða í aðalhlutverki hvort heldur er í keppnum eða einfaldlega sem ljúf dægradvöl fyrir alla. Einnig verður boðið upp á námskeið skíðaiðkun fyrir fatlaða. Í Skautahöllinni verður keppt í listhlaupi, íshokkí, krullu og endurvakin verður bæjarkeppnin í íshokkí þar sem erkifjendurnir Akureyri og Reykjavík takast á.
Hin árlega Vetrarsportsýning sem Félag vélsleðamanna í Eyjafirði stendur fyrir verður aðra helgi í febrúar og sömu helgi verður snjócross og íscross.
Þeir sem vilja njóta útivistar með því að ganga eða hlaupa geta tekið þátt í Vetrarhlaupi UFA eða jafnvel Skaflahlaupi UFA. Hestafélagið Léttir stendur fyrir Stjörnutölti, Bílaklúbbur Akureyrar sýnir ísakstur og skátar leggja vetrarþrautir eins og þeim erum einum lagið.

























