1. gr. Félagið heitir Bílaklúbbur Akureyrar, skammstafað B.A., og er heimili þess og varnarþing á Akureyri. Kennitala B.A. er 660280-0149.
2. gr. Sá sem óskar eftir inngöngu í félagið fyllir út inntökubeiðni á félagsfundi og skal hann hafa tvo meðmælendur úr röðum félagsmanna, og einnig hafa náð 15 ára aldri. Umsóknin er síðan afgreidd á næsta félagsfundi.
3. gr. Markmið félagsins eru:
- Rekstur félagsheimilis
- Keppnishald í akstursíþróttum
- Standa fyrir bílasýningu og fjölskylduskemmtun á 17. júní ár hvert
- Safna og varðveita gamla bíla ásamt sögum og heimildum.
- Uppbygging akstursvæði til keppnishalds og bættrar umferðarmenningar.
4. gr. Í félaginu skulu starfa deildir fyrir torfærukeppnir, sandspyrnu og kvartmílukeppnir, rally og rallycross, fornbíladeild og bílasýningardeild ásamt landsvæðaráði og skal hver deild skipuleggja og starfa að sínum málum undir stjórn tilnefnds deildarfulltrúa.
5. gr.
- Stjórn félagsins skal skipuð 8 mönnum, þar af eru 5 deildarfulltrúar og 3 úr landsvæðaráði auk húsvarðar. Hver deild/ráð tilnefnir sinn/sína fulltrúa en húsvörður er kosinn af fundarmönnum. Stjórnarmenn skulu skipta með sér störfum og starfa samkvæmt 16 gr.
- Stjórnarmenn skulu hafa óflekkað mannorð og hafa starfað í félaginu í a.m.k. 3 ár.
- Endurnýjun stjórnar á aðalfundi skal aldrei vera meiri en 50 %.
- Aðalfundur skal haldinn í febrúar eða mars ár hvert og til hans boðað skriflega með viku fyrirvara auk auglýsinga meðal annars á www.ba.is.
- Kosnir skulu tveir endurskoðendur sem endurskoða bókhald félagsins og skila undirrituðu fyrir aðalfund. Endurskoðendur skulu að minnsta kosti hafa starfað í 10 ár í félaginu. Æskilegt er að fá löggilda endurskoðandastofu.
6. gr. Stjórn félagsins fer með sameiginleg mál deilda og hefur öll fjármál og framkvæmdavald í félaginu. Hún er ábyrg gerða sinna gagnvart félaginu og sker úr um öll árgeiningsmál sem upp kunna að koma er varða hagsmuni félagsins.
7. gr.
- Árgjald félagsins skal ákveða á aðalfundi ár hvert. Gjaldkeri sér um innheimtu árgjalda. Gjaldkeri innheimtir einnig aðrar tekjur félagsins. Hann gerir glögga grein fyrir gjöldum og tekjum félagsins og ávaxtar sjóði þess í áreiðanlegum peningastofnunum. Eigi má greiða úr félagssjóði nema með tilvísun stjórnar. Þeir sem ekki hafa greitt árgjald sitt fyrir aðalfund ár hvert missa atkvæðisrétt og kjörgengi og hafa þar með fyrirgert rétti sínum til Bílaklúbbs Akureyrar. Árgjöld skulu að fullu greidd innan tveggja mánaða frá aðalfundi.
- Frítt er í klúbbinn fyrir maka og börn félagsmanna.
8. gr. Stjórnin skal gera félagsskrá eftir hvern aðalfund og skal þar getið hverjir kjörnir hafa verið í hin ýmsu störf fyrir félagið það ár.
9. gr. Lögum félagsins má aðeins breyta á lögmætum aðalfundi og nær breytingin aðeins fram að ganga að 2/3 hlutar fundarmanna samþykki hana.
10. gr. Fari svo að félagið leysist upp skulu eignir þess varðveittar í allt að fimm ár í áreiðanlegri peningastofnun í von um að svipaður félagsskapur rísi upp aftur á Akureyri. Annars skal sú stjórn sem verður við völd er félagsskapurinn leysist upp ákveða hvað gert verður við eignir félagsins að þessum fimm árum liðnum.
11. gr. Tillögur skulu bornar fram á félagsfundum. Ef einhver rígur kemur upp innan félagsins skal hann borinn undir stjórn og lagfærður tafarlaust sé það mögulegt. Skylt er að halda góðan félagsanda innan félagsins.
12. gr. Gerist félagsmaður brotlegur við lög eða starfsreglur félagins getur hann fyrirgert rétti sínum til félagsins um tíma eða að fullu að mati félagsfundar.
13. gr. Stjórnin getur tilnefnt heiðursfélaga fyrir aðalfund þegar við á, þó aldrei fleiri en einn í senn fyrir hverja deild.
14. gr. Starfsár skal vera frá aðalfundi til aðalfundar.
15. gr. Reglur um farandbikara Bílaklúbbs Akureyrar.
- Enginn getur unnið farandbikar til eignar.
- Á farandbikar skal grafa nafn vinningshafa og ártal.
- Farandbikarar skulu varðveittir í félagsheimili B.A. milli keppna.
- Fari svo að tveir eða fleiri verði jafnir að stigum eða tíma, þá skulu allir þeir aðilar skráðir á bikarinn.
16. gr. Starfsreglur:
- Stjórnarformaður er æðstavald félagsins. Hann stjórnar félagsfundum sem skulu haldir í hverjum mánuði auk stjórnarfunda eins og þurfa þykir.
- Varaformaður er næðst æðsti maður félagsins og hægri hönd formanns.
- Gjaldkeri sér um fjármál og bókhald.
- Aðstoðargjaldkeri sér um bókhald með gjaldkera.
- Ritari heldur fundargerð á félagsfundum og stjórnarfundum. Hann skal í upphafi fundar lesa fundargerð síðasta fundar. Hann sér um bréfaskriftir fyrir félagið eins og stjórn óskar.
- Meðstjórnandi er almennur stjórnarmaður.
- Fjölmiðlafulltrúi sér um samskipti við fjölmiðlamenn. Hann skal skrifa og koma á framfæri málum félagsins svo og greinum um keppnir sýningar og félagsstarf ásamt að vera ábyrgur fyrir heimasíðu B.A, www.ba.is.
- Eignavörður skal fylgjast með eignum félagsins.
- Húsvörður sér um rekstur félagsheimilis og ræður starfsmenn til starfa í því. Húsvörður skal halda bókhald fyrir húsið í samráði við gjaldkera. Húsvörður skal sjá til þess að utanfélagsmaður hafi aldrei lykil að húsinu. Húsvörður afhendir lykla einungis þeim félagsmönnum sem hann telur nauðsynlega þurfa og innheimtir þá aftur að lokinni notkun.

























