Auto-X braut á morgun
laugardagur 28.júlí 2012 - Lestrar 24
Á morgun höfum við opið á svæðinu okkar frá kl. 13:00 - 16:00 fyrir akstur bíla í Auto-X braut. Æfingargjald er aðeins 1
þús. krónur en allir ökumenn verða að vera meðlimir í akstursíþróttafélagi innan ÍSÍ til þess að
fá að keyra. Við tökum á móti nýskráningum í BA á staðnum. Hvetjum annars sem flesta til þess að mæta og prófa
því það er þrælgaman að keyra Auto-X.























