Bíladagar 2010 - UPPSKERUHÁTÍÐ
laugardagur 10.júlí 2010 - Lestrar 121

Mynd úr hlaðinu á Ystafelli - 2009
Við hefjum borðhald klukkan 18:00.- og munum bjóða upp á hópferð frá Leirunesti kl. 17:30.- fyrir þá sem ekki vilja keyra sjálfir eða keyra yfir höfuð og munum keyra mannskapinn heim aftur að veislunni lokinni. Það eina sem menn þurfa að gera til þess að taka þátt í þessum fögnuði er að skrá sig til þátttöku í tölvupósti á ba@ba.is fyrir kl. 16:00.- n.k. föstudag. Skráning er eingöngu til þess að við gerum okkur grein fyrir fjöldanum en allar veitingar verða í boði Bílaklúbbs Akureyrar.
Þeir sem hafa áhuga á að gista á staðnum er einnig bent á það að hann Sverrir er búinn að græja tjaldaðstöðu fyrir okkur og því velkomið að breyta þessum fagnaði í útilegu fyrir þá sem það vilja.
Með von um góða þátttöku og með kærum þökkum enn á ný fyrir frábæra Bíladaga!
Stjórn B.A.




























