Greifatorfæran 2012 - SKRÁNING
laugardagur 11.ágúst 2012 - Lestrar 172
Samhliða lokaumferðum FIA/NEZ 2012 sem fram fara hjá okkur dagana 18. og 19. Ágúst þá keyrum við síðustu tvær umferðir
Íslandsmótsins í torfæru. Hjá sérútbúnum (Unlimited) og sérútbúnum götubílum (Modified)
þá gilda FIA/NEZ keppnirnar einnig til Íslandsmeistara en okkar íslensku götubílar verða keyrðir á milli brauta hjá hinum eins og venja er
hjá okkur og er sú keppni bara til Íslandsmeistara. Skráning fyrir götubílana er nú hafin og fer hún fram í tölvupósti
á ba@ba.is. Það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn og kt. ökumanns, heiti bíls og
upplýsingar um akstursíþróttafélag. Keppnisgjald er krónur 6. þús. í hvora keppni fyrir sig og skal greiðast inn á
565-26-580 kt. 660280-0149. Skráningarfresti fyrir götubíla lýkur laugardaginn 11. ágúst kl. 11:00.-
Fyrri skráningu í FIA/NEZ mótið lauk þann 18. júlí en hún er búin að vera opin síðan 23. janúar. Enn er þó hægt að skrá sig og allar upplýsingar um mótið ásamt lista yfir þá sem skráðir eru nú þegar til leiks má finna á ensku hér: FIA NEZ 2012
Seinni skráningu fyrir FIA/NEZ mótið lýkur samkvæmt reglum mótaraðarinnar 7 dögum fyrir keppni eða kl. 11:00.- laugardaginn 11. ágúst. Til þess að einfalda íslenskum keppendum skráningu þá geta þeir sem ekki hafa tök á því að fylla út fyrra skráningarform sent tölvupóst á ba@ba.is með staðfestingu á skráningu sinni. Þar þarf að koma fram: Nafn og kt. ökumanns, heiti bifreiðar, flokkur, upplýsingar um akstursíþróttaklúbb og ef menn vilja fá nánari upplýsingar birtar í keppendalista þá má bæta við upplýsingum um ökutækið og styrktaraðila þess. Skráningargjald í þessa seinni skráningu eru 100 Evrur eða 15 þús. íslenskar krónur fyrir hvora keppni.
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ SKRÁNING TELST EKKI GILD FYRR EN KEPPNISGHALD HEFUR VERIÐ GREITT!
Allar nánari upplýsingar um keppnina verða birtar hér á síðunni þegar nær dregur.
Jeppadeildin