Myndir úr sveitaferð Fornbíladeildar
fimmtudagur 26.júlí 2012 - Lestrar 75
Við tókum flottan sveitarúnt í gær er við þáðum heimboð í Gerði í Hörgárdal og litum þar m.a. á 1950
árgerð af Dodge Coronet sem þar er í uppgerð. Bíllinn er alveg ótrúlega heill og var með öllu ryðlaus þegar hann var fluttur
hingað til lands. Það verður gaman að fylgjast með honum Sigurði klára þetta verkefni sem hann hefur hingað til unnið af miklum sóma. Við
þökkum þeim hjónum kærlega fyrir veitingarnar og hlökkum til þess að heimsækja ykkur að ári. Á heimleiðinni litum við
einnig við í Staðartungu og fengum aðeins að vappa um svæðið og mynda, myndirnar eru komnar í albúm deildarinnar hér.
Fornbíladeildin
Fornbíladeildin





















