Bookmark and Share

Bílaklúbbur Akureyrar

Bílaklúbbur Akureyrar

Fréttir

Skagafjarðarrally

Bílaklúbbur Skagafjarðar heldur sitt árlega Skagafjarðarrally laugardaginn 24. júlí n.k. og má nálgast leiðarlýsingu í tilkynningu sem klúbburinn hefur nú gefið út:

Keppnin er ræst frá Vörumiðlun á Sauðárkróki og ekið til hægri (suðurs) inn á veg nr. 75 til Varmahlíðar áfram til suðurs gegnum Varmahlíð. Beygt til vinstri inn á veg 752 Mælifell ekið áfram til suðurs u.þ.b. 11 km þar sem beygt er til hægri inn á veg 751 Efribyggð. Beygt til vinstri inn á brú (Mælifellshnjúkur, Hveravellir 35) eftir u.þ.b. 1,7 km og þaðan ekið að upphafi sérleiðar u.þ.b 4,7 km frá brúnni.
Sérleiðin um Mælifellsdal er 25 km og verður ekin tvisvar fram og til baka 4 sérleiðarhlutar, samtals 100 km.

Eftir Mælifellsdal er ekið til baka í Varmahlíð,þar beygt til hægri eftir vegi þjóðvegi 1 og honum fylgt um 5 km þar til beygt er til vinstri inn á veg nr. 76 í átt til Siglufjarðar.
Ekið er um 23 km að afleggjara merktum Ásgarður/Kolkuós til vinstri, beygt til vinstri og ekið niður afleggjarann að Kolkuósi um það bil 2 km. Þar er ræst inn á sérleið Ásgarður-Bakki. Afleggjari að Bakka ekinn upp að þjóðvegi 76, beygt til vinstri að afleggjara Kolkuósi og sérleið endurtekin.

Að loknum akstri um sérleiðir á Bakka er ekið u.þ.b 3,5 km og þá beygt til hægri inn á veg 76. Ekið u.þ.b 1 km og þá beygt til hægri inn á þjóðveg 75 til Sauðárkróks og eknir 17 km eftir Strandvegi inn á Sauðárkrók að Vörumiðlun. Þaðan eru ekin sérleiðin Nafir tvisvar sinnum.

Eftir er að ganga frá merkingum um upphaf og enda sérleiðar, en það mun verða gert með sama hætti og undanfarin ár.

Með fyrirvara um breytingar
Bílaklúbbur Skagafjarðar


Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 80
Samtals: 225360

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hvernig fannst þér árið 2011

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn