Stefán Bjarnhéðinsson heiðraður hjá ÍBA
föstudagur 20.janúar 2012 - Lestrar 60
Stefán Bjarnhéðinsson tók á móti viðurkenningu frá Íþróttabandalagi Akureyrar á hófi bandalagsins
síðastliðinn miðvikudag. Stefán var tilnefndur til titilsins Íþróttamaður Akureyrar fyrir framúrskarandi árangur sinn í sportinu
á liðnu ári. Alls voru 15 tilnefningar til þessa titils en eins og áður hefur komið fram var það hún Bryndís Rún Hansen, sundkona
í Óðni, sem hampaði titilinum að þessu sinni - rétt eins og síðustu tvö ár.
Hér má sjá tilnefnda aðila ásamt bæjarstjóra Akureyrar, Eiríki Birni Björgvinssyni.

Hér má sjá tilnefnda aðila ásamt bæjarstjóra Akureyrar, Eiríki Birni Björgvinssyni.






























